Helkomin(n) á heimasíðu B-2 !!

B-2

25.05.2008 19:23:13 / viktor

Aðalfundur!

sælir félagar mér langaði bara að minna á aðalfundinn sem er á þriðjudaginn... sjáumst þá...

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.05.2008 14:01:28 / jofurgi

Eru allir á lífi?

Þessi heimasíða virðist ekki vera það.

Hún er meira eins og frosinn alheimur þar sem tíminn stendur í stað á meðan allt gerist þá gerist ekki neitt.

En hey! Hvenær göngum við annars inn í þessa björgunarsveit?


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.04.2008 23:17:19 / viktor

Myndir

jæja ég setti inn myndir af ísklifrinu það er undir myndasöfn hérna vinstramegin upp......

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 22:59:21 / eythor

Myndir!!

Myndir komnar af tækjaæfingu sem haldin var á Lyngdalsheiði þann 15. mars síðastliðinn:haha:
http://ringo.com/photos/album.html?albumId=43002297
Njótið vel (sérstaklega Viktor)

Kveðja Eyþór


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 09:11:52 / eythor

Árshátíð!!

Sóley segir:
Árshátíðin verður glæsileg að vanda og verður að þessu sinni haldin þann 1. mars í hinum óviðjafnanlega sal Skútunnar, Hólshrauni 3, 220 Hafnarfirði. Gamanið hefst kl 19:00 með fordrykk. Boðið verður upp á þriggja rétta máltíð með víni og verður veislustjóri kvöldsins einn af okkar fyndnari meðlimum...Skemmtiatriði verða meðal annars í boði nýliðahópanna og eftir matinn mun hljómsveitin Blúndubandið leika fyrir dansi. Dansað verður fram á nótt og í lok kvöldsins verður svo rúta niður í 101.
Miðaverð á þessa frábæru hátíð er einungis þrír fjólubláir (3000) og verður sala miða niðri í sveit frá kl 19- 22 þriðjudaginn 26. feb. og fimmtudaginn 28. feb.
Þið viljið ekki missa af þessu !
Kveðja Skemmtinefndin


Alrighty??? ef það eru einhverjar spurningar þá er bara að bjalla - sóley, 8687679.

Sýnið nú hvað í ykkur býr og fjölmennið...
be there or...

» 9 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 19:19:37 / jofurgi

Íspríl

Spotti og sa. Halló. Ís. Um helgina. Eða slaka? Hvað segja kappar? Menn ekki að verða vitlausir í að prófa íspríl?

Hvað segja stjórnendur? Verður svoleiðis í boði, að ísklifra með ísalp í Breiðdal?

Óska svara


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 17:01:07 / viktor

hmmm...!

jæja hvað er uppi strákar?

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 18:26:16 / eythor

Myndir Frá helginni!!

jæja..komnar myndir inná nýju myndasíðuna mína:D

http://ringo.com/profile/eythorsno.html 

Þær eru ekki alveg í réttri röð held ég..en ég reyni að laga það..kann ekkert á þetta.

 

Muniði hvað staðurinn sem við loksins enduðum á heitir? 


» 23 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 13:40:51 / tommi

Gleðileg jól

hóhóhó

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

Takk fyrir margar frábærar ferðir og stundir á árinu sem er að líða og vonandi eigum við eftir að eiga margar skemmtilegar ferðir á komandi ári.

Sjáumst hress

kv.

Tommi


» 23 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 18:15:09 / jofurgi

UPP MEÐ FJÖRIÐ KAPPAR!

 

 

Orðið á götunni er það að þessi heimasíða sé orðin virkilega ólifandi. Jafnvel ófjörug. Ekki dauð en heldur ekki lifandi svo ég ákvað að glæða hana lífi með oflítilli sögu:

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 12:02:37 / tommi

Flugeldasala FBSR

Hæ á ný

 Alltaf nóg að gera hjá okkur.....

Okkur í B2 hefur verið falið að sjá um og manna einn sölustað flugelda fyrir þessi áramót. Staðurinn er í Breiðholti, en hvar hef ég ekki hugmynd, ég rata ekki einusinni upp í Breiðholt sjálfur ;).....

Allavega, þá verður opnunartíminn frá 10-22 dagana 28.-30. des og frá 10-16 þann 31.des. Ég mun setja saman vaktaplan fyrir okkur og ef við verðum heppin, þá munum við fá 1-2 úr B1 til liðs við okkur.

Vakta verður staðinn á nóttunni, þannig að við verðum að deila næturvökum á okkur líka, en þá tökum við bara með svefnpoka.

Adios amigos


» 9 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 11:55:25 / tommi

Kaupfélagið

Sæl

Mig langaði að benda ykkur á að búið er að setja upp síðu á innri vef FBSR sem kallast Kaupfélagið. Þar er búið að setja inn nokkra hluti, belti, sigtól osfrv. sem FBSR ætlar að panta eftir helgi. Öllum meðlimum FBSR er frjálst að panta vörur á síðunni, en athugið að hafa hraðar hendur ef þið ætlið að vera með og athugið jafnframt að ekki er hægt að hætta við pöntun, þannig að um að gera að vera viss....

 Lítið endilga við í Kaupfélaginu og setjið inn pöntun við fyrsta tækifæri, ef þið ætlið að fá vörur á góðu verði.

 

kv. aðstoðar kaupfélagsstjórinn ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.11.2007 16:01:34 / viktor

Hellweekend

Mér fannst sniðugt að setja inn færslu hérna þannig að allir gætu kommentað um það sem þeir vildu í samband við næstu helgi... :haha:

(ég vona að ég finni svoa skilti um næstu helgi þá veit ég að ég er að fara rétta leið...)


» 52 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 12:40:08 / viktor

Kassapartý !!!

Núna næstkomandi laugardag (17 nóv) verður haldið hið geysivinnsæla Kassapartý

Partýið verður haldið í Sjálfstæðissalnum á Seltjarnarnesi og hefst gamanið kl 8

Fyrir ykkur sem ekki þekkið þessa áralöngu hefð okkar (hóst nillar) þá er hún sú að fyrir hvert nýtt fallhlífastökk sem stokkið er skuldar viðkomandi kassa af bjór! Haldið er síðan eitt gott Kassapartý einusinni á ári, eða á allavega að vera gert, er reyndar komin nokkur ár síðan að það var haldið síðast, þar sem komið er að greiðsludögum.

Nú er semsagt komið að þessu ,,árlega" Kassapartýi.

Því skora ég á alla sem skulda kassa eða tvo (sem að ég veit að eru þónokkrir ;)) að standa við skuldir sínar og mæta með fullt fang farms!

En eins og fyrr segir mæting kl 8 í Sjálfstæðissalin n.k. laugardag, skyldumæting fyrir þá sem skulda og nilla, eitthvað fljótandi verður í boði sveitarinnar, vona að sjá sem flesta

kv Eyrún

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 14:23:48 / Einar

Hittingur Mánudaginn 19.Nóv !

Við ætlum að hittast Mánudaginn 19.Nóv niðrí sveit kl : 19:00 !! Þetta verður Upprifjun í Skyndihjálp !! ALLIR EIGA AÐ MÆTA !!!  (B2)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 22506
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1441 dögum
Árshátíð (...Ísklifur...)
Textabox
Þessi orð eru góð orð...?